Veiðileyfi2019-02-19T10:24:36+00:00
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    ATH. Verðið er fyrir staka stöng. Ármenn er eitt þeirra félaga sem leigir veiðirétt í Hlíðarvatni. Félagið var stofnað 28. febrúar 1973 og er eina fluguveiðifélag landsins. Félagið leigir út 3 stangir ásamt veiðihúsi, Hlíðarseli. Stangirnar 3 sem Ármenn hafa yfir að ráða, eru seldar stakar eða allar í einum pakka. Ath: Ef stök stöng eða 2 stangir eru bókaðar, þá deila veiðimenn húsinu með þeim sem eru með hina eða hinar stangirnar á viðkomandi veiðidegi. Leyfilegt Agn: Fluga og spónn. Veiðihús: Stendur undir hlíðinni vestanverðri, upp af Botnavík. Þar er snyrting, tvö herbergi með 2 kojum hvort, svefnloft, eldhúsbekkur með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, forstofa og gott úti-gasgrill. Taka þarf með sér rúmfatnað/svefnpoka, borðtuskur og viskastykki. Lyklar að húsi eru geymdir á krók við útihurðina. Reglur: Húsinu skal skila hreinu til næstu veiðimanna eigi síðar en kl. 18:00 og taka með sér allt rusl. Athugið að lausaganga hunda við vatnið er stranglega bönnuð og séu hundar hafðir í húsinu mega þeir einungis dvelja í forstofurými. Veiði má einungis stunda frá landi og er veiði frá bát óheimil vegna ónæðis fyrir þá sem veiða frá landi. Þó er heimilt að nota belgbát (belly boat), nema inni á víkum, svo sem í Botnavík. Þeir veiðimenn skulu þó víkja fyrir veiðimönnum í landi og halda sig í 50 metra fjarlægð frá næsta veiðimanni. Veiðimenn mega hefja veiðar kl. 18:00 kvöldið fyrir skráðan veiðidag og ljúka þeim sólarhring síðar. Að öðru leyti er veiðitími frjáls. Veiðimenn kvitti fyrir veru sína við vatnið í dagbók veiðihússins og skrái allan afla í veiðibók hússins. Staðsetning: Í Selvogi, milli Krýsuvíkur og Þorlákshafnar. Vegalengd frá Elliðaárbrúm er rúmlega 60 km um Þrengsli en 55 km um Krýsuvík. Veiðisvæði: Allt vatnið niður að brú á Suðurstrandarvegi utan hólmanna við Stakkavík sem eru friðaðir á varptíma fugla. ATH. Verðið er fyrir staka stöng í einn dag, með afnoti af húsi. ÁRMENN! Munið afsláttarkóðann fyrir Júlí-September. Ef þið lendið í vandræðum með kóðann, sendið póst á [email protected] Ef þig vantar aðstoð við að ganga frá bókun, hafðu þá samband í síma 897 3443 eða sendu póst á [email protected] – einnig er hægt að bóka með því að senda póst á [email protected]
    Details
  • Stakur dagur - 4 stangir saman í pakka Stangardagurinn á kr. 20.000 Skógá undir Eyjafjöllum er 4ra stanga lax og silungsveiðiá. Veiðin, árin á undan gosinu, var mjög góð og stundum hreint út sagt frábær en árin 2010-2012 var áin í lægð. Skógá byggir á seiðasleppingum. Að öllu jöfnu er 25-35þ seiðum sleppt. Mest var veiðin sumarið 2008 þegar 1.537 laxar og um 500 bleikjur komu á land. Almennar upplýsingar Fjarðlægð: Um 150 km frá Reykjavík, ca. mitt á milli Víkur og Hvolsvallar. Agn: Fluga og maðkur Veiðitími: Veitt er frá morgni til kvölds, max 12 klst. Fjöldi stanga: 4 - yfirleitt seldar saman í pakk Veiðihús: Veiðihús er á svæðinu - það fylgir ekki með í verði leyfana á þessum degi. Hægt er að bóka húsið sérstaklega. Veiðisvæðið: Svæðið sem veitt er á samanstendur af um 7 kílómetra kafla Skógár, 2km kafla Kvernu og 1,5 km kafla Dalsár. Svæðið er afar fjölskylduvænt og gott aðgengi er að hyljum. Kvóti er 2 laxar á stöng á dag.
    Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Jörðin Hraun (Hraunstorfan) er staðsett vestan Ölfusárósa í Sveitarfélaginu Ölfusi. Land Hraunstorfunnar, sem Hraun er hluti af, er um 2400 ha ef landhelgi jarðarinnar (netlög) er talin með. Land jarðarinnar eru að mestum hluta hraun, sandur og mýrar, en ræktanlegt land er lítið. Stangveiði hefur lengi verið stunduð á Hrauni. Veiðin er oft ævintýralega góð á svæðinu, bæði er það sjóbirtingur og bleikja sem tekur agn veiðimanna. Mesta veiðivonin er rétt fyrir aðfall og meðan fellur að. Oft er betra að byrja neðst í ósnum og færa sig ofar þegar fellur meira að. Á útfallinu getur verið gott að vera ofarlega eða þar sem landállinn slær sig að bakkanum, þegar byrjar að falla aftur út. Fiskurinn, sem oftast er í ósnum í æti, og þá sérstaklega í sandsíli, fylgir flóðinu upp í ána og gengur síðan niður þegar fellur aftur út. kort af veiðisvæðinu Verð veiðileyfa er kr. 3.500 Seldar eru dagstangir en veiðitíminn er frá 7 -24 alla daga og veiðitímabilið frá 1. apríl og fram til 30. September. Leyfilegt agn er fluga, maðkur, makríll og spúnn. Flóðahætta. Allir sem aka að ánni verða að gæta þess að fylgjast með flóði sem getur í stórstrauminn flætt alveg að bökkum og verður þá ekkert undanfæri ef bílum er ekki forðað í tæka tíð. Ath. Senda þarf inn veiðiskýrslu á emailið [email protected] – að lokinni veiði. Undir ár og vötn, má lesa nánar um Hraun í Ölfusi.
    Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Veiðileyfi í 1 dag - 2 stangir saman í pakka Verð á stangardag er kr. 4.900   Viltu veiða í stórbrotnu landslagi? Silungasvæði Ófæru er fjögurra stanga veiðisvæði og eru stangirnar seldar 2 saman. Veiðisvæðið samanstendur af Syðri-Ófæru annarsvegar og Nyrðri-Ófæru hinsvegar. Góð veiði hefur verið á svæðinu undanfarin ár og er fyrst og fremst um fallega bleikju að ræða. Einstök náttúrufegurð er á svæðinu, Ófærufoss er einstaklega fallegur foss í ánni Nyrðri-Ófæru og fellur í tveimur fossum ofan í Eldgjá. Í hylnum fyrir neðan fossinn leynast oft vænar bleikjur og er þar um einn stórbrotnasta veiðistað landsins að ræða. Í byrjun tímabils er helst að finna fisk í hyljum nálægt fossum en þegar líður á sumarið dreifir hann sér víðar um ánna. Veiðistaðir eru ekki merktir við Ófærur og krefst þetta veiðisvæði því þess að veiðimenn séu duglegir að ganga, leita og prufa sig áfram. Veiðileyfið gefur einnig rétt til að veiða í Blautulóni. Sjá hér: “linkur á Blautulón” Veitt er á flugu og skal öllum fiski sleppt. Tilkynna skal allan veiddan fisk í N-Ófæru og S-Ófæru með tölvupósti á netfangið [email protected]. Gott er ef veiðimenn taka þar fram hvaða á var um að ræða, stærð, nafn flugu og grófa staðarlýsingu. Það má finna góða gistingu í nágrenninu t.d. Hólaskjól og Snæbýli. Einnig má tjalda við Blautulón og sé það gert eru vinsamleg tilmæli að veiðimenn skilji ekkert eftir sig og hugsi vel um umhverfið.
    Setja í körfu Details
  • Veiðileyfi í Blautulóni - dagleyfi Blautulón eru tvö talsins og eru á Skaftártunguafrétti á hálendinu. Þau eru þétt setin af frekar smárri bleikju, en þó leynast stærri ránbleikjur og stöku urriði inn á milli. Þetta eru fjölskylduvæn lón, enda fá flestir sem reyna einhverja veiði. Umhverfi þeirra er hið klassíska eldfjallalandslag, svartir sandar og eitur grænn mosi. Leyfilegt agn: Í Blautulónum er leyfilegt að veiða á maðk, spún, flugu en einnig er leyfilegt að veiða í net. Hirða má allan fisk. Verð: Veiðileyfi kosta lítið, eingungis kr. 1.500 stöngin á dag. Veiðitími: Veiði hefst 1 júní og lýkur í lok September Þeir sem bóka leyfi á Silungsveiði Ófæru, fá leyfi í Blautulónum með að auki, frítt, til nýtinga á sama degi og leyfin í Ófærur gilda. Hér eru leyfin fyrir Ófærur
    Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    Silungasvæði Fossár er 2ja stanga veiðisvæði sem nær frá Háafossi að ofanverðu að Hjálpafossi að neðanverðu. Þessir fossar eru ófiskgengir en á milli fossana er mikið magn af urriða, bæði stórum og smáum. Háifoss er næst hæsti foss landsins og það getur verið ansi tilkomumikið að standa fyrir neðan hann og veiða fosshylinn, sem gefur oft góða fiska. Efri hluti silungasvæðis Fossár rennur í Gljúfri. Fáir veiðimenn veiða þetta svæði en þegar það er gert, þá hefur það stundum gefið mjög góða veiði. Þegar neðar er komið þá má finna fisk víða, á liggnum, í strengjum eða undir bökkum. Veiðistaðir eru ekki merktir við Fossá og krefst þetta veiðisvæði því þess að veiðimenn séu duglegir að ganga, leita og prufa sig áfram. Veitt er á 2 stangir í Fossá og eru þær seldar saman í pakka. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt. Verð á stangardag er kr. 
    Details
  • Ekki á lager
    Sale!
    4 stangir í 2 daga í Langadalsá, 5-7. sept 2023 Hád – hád Stangardagurinn á kr. 52.000 - Tilboðsverð, kr. 39.000 Húsgjald innifalið í heildarverði á vefnum Langadalsá við Djúp Langadalsá á upptök sín á Þorskafjarðarheiði í um 4 - 500 metra hæð yfir sjó. Áin er dragá, 24 km.að lengd og fellur um samnefndan dal til sjávar við Nauteyrarós innst við Ísafjarðardjúp. Áin er fiskgeng um 20 km. veg og meðal sumarrennsli 1,6 rúmm. á sek. Hún rennur um vel gróið láglendi norður Langadalinn, sem er óvanalegt á þessum slóðum. Stangir og leyfilegt agn: Áin er veidd með aðeins 3-4 stöngum og er eingöngu leyfð fluguveiði enda er áin einstaklega vel fallin til fluguveiða. Öllum laxi skal sleppt. Veiðisvæðið: Merktir veiðistaðir eru 37 talsins og aðgengi að veiðistöðum er hið besta og er fólksbílafært með ánni. Langadalsá er síðsumarsá að upplagi en þónokkuð er af snemmgengnum tveggja ára laxi á vatnasvæðinu og hefur sá stofn farið vaxandi í kjölfar skyldusleppinga á stórlaxi sem hófust árið 2013. Veiðitímabil: Veiðin hefst 24 júni og lýkur 20 september. Veiðitölur: Meðalveiði í Langadalsá síðustu 15 ár eru um 310 laxar. Þá er einnig ágæt sjóbleikjuveiði í ánni. Veiðihús: Veiðihúsið við Langadalsá er einstaklega rúmgott. Þar eru 8 tveggja manna herbergi. Rúmgóð stofa og borðstofa. Þá er góð verönd við húsið, góð gufa, heitur pottur og gasgrill. Langadalsá hentar þvi einstaklega vel fyrir minni veiðhópa og fjölskyldur. Húsgjald, kr. 65.000 er innheimt sérstaklega með hverju holli. Seldir eru 2 eða 3 dagar í senn, allar stangir saman í pakka. Stangardagurinn (1 stöng á dag) frá kr. 39.000 - 95.000.
    Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    Fossá í Þjórsárdal er falleg lax og silungsveiðiá sem rennur í efri hluta Þjórsár. Frá Hjálparfossi að ármótum við Þjórsá er eitt samfellt veiðisvæði. Veitt er af báðum bökkum árinnar, þar skiptast á flottar breiður, djúpir hyljir og fallegir strengir. Eitthvað af laxi gengur í ánna í júlí en besti tíminn er þegar líða fer að hausti. Undanfarin ár hefur mikið af vænum laxi veiðst í ánni þegar kemur inní sumarið en einnig veiðist bleikja, birtingur og urriði á laxasvæðinu fyrir neðan Hjálparfoss. Aðeins er veitt með flugu í Fossá og skal sleppa öllum fiski aftur í ánna. Ekkert veiðihús er við ána og eru veiðileyfi seld frá morgni til kvölds. Veitt er á 2 stangir og eru þær alltaf seldar saman (1 laus stöng = 1 dagur, báðar stangir). Stangardagurinn (1 stöng í 1 dag) er á kr. 20.000 - 60.000 á laxveiðitímanum. Lægra verð er í vorveiðina. Ef þig vantar aðstoð við að ganga frá bókun, hafðu þá samband í síma 897 3443 eða sendu póst á [email protected]
    Details
  • Setja í körfu Details
  • Laxá í Miklaholtshreppi 2 stangir í Laxá í Miklaholtshreppi Heill dagur. 12 tíma max, á milli 7 og 22 Stangardagurinn á kr 25.000 Laxá í Miklaholtshreppi Laxá er nett tveggja stanga á sem á sér sameiginlegan ós við Straumfjarðará. Í hana gengur lax og töluvert af bleikju og sjóbirtingi. Áin hefur ekki verið í almennri sölu í all nokkur ár og er því gaman að gefa veiðimönnum kost á að kynna sér hana í sumar. Veiðisvæðið í Laxá er tæplega 10 km og liggur frá Snæfellsnesvegi og niður að ármótum Straumfjarðarár. Áin er friðuð fyrir ofan veg. Seldir eru stakir dagar, frá morgni til kvölds. Eingöngu er veitt í 5 daga í hverri viku. Föstudaga - Laugardaga - Sunnudaga - Mánudaga - Miðvikudaga Seldar eru 2 stangir og þær eru seldar saman í pakka. Verðið er fyrir 2 stangir. Veiðitíminn er að miklu leyti frjáls en hámark 12 tímar á milli klukkan 7:00 og 22:00. Eingöngu fluguveiði og öllum fiski sleppt. Ekkert veiðihús er við ána
    Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    Svartá Holl 4 Stangar í Svartá í 3 daga, 14-16. sept 2024 ATH. Greitt er fyrir 3 stangir Std á kr. 74.900   Svartá er í Svartárdal er gullfalleg fluguveiðiá. Svartá rennur í Blöndu í Langadal og er áin líkt og Blanda þekkt fyrir væna laxa. Veiðisvæðið byrjar við veiðistaðinn Gullkistu en þar rétt fyrir ofan er Ármót sem hefur verið aflahæsti veiðistaðurinn í Svartá ár eftir ár. Þar ræður reyndar vatnshæð Blöndu mestu um. Efsti veiðistaðurinn á Laxasvæðinu er Teigakot Svartá er meðalstór bergvatnsá með 480 ferkm. vatnasvið. Sameiginlegt veiðifélag er með Blöndu og Svartá. Staðsetning: Svartá er í um 270 km fjarlægð frá Reykjavík, og 28 km frá Blönduósi. Leyfilegt agn og veiðireglur: Eingöngu fluga. Skylt er að sleppa öllum laxi yfir 68cm og lengri en heimilt er að halda eftir einum hæng, undir 68 cm, á hverri vakt á hverja greidda dagstöng - en eftir 20. september er sleppiskylda á öllum laxi. Veiðitímabil: 1. júlí til 30. september. Fjöldi stanga: Leyfilegt er að veiða á 4 stangir í Svartá en þegar veiðileyfi eru keypt, þá þarf einungis að greiða fyrir 3 stangir. Daglegur veiðitími: 7-13 og 16-22. Seinni vaktin er frá 15-21 frá 15. ágúst. Veiðihús: Snyrtilegt 5 herbergja hús, þar af er eitt herbergi í aukahúsi. Öll herbergin eru tveggja manna og fer vel um 10 manns í húsinu. Góð setustofa og borðstofa eru til staðar ásamt heitum potti á verönd. Aðgerðahús og vöðlugeymsla er til staðar í sérhúsi. Hvert holl greiðir kr. 59.000 í húsgjald og eru rúm uppábúin og hús þrifið að dvöl lokinni. Aðgengi: Mjög gott, fólksbílafært. Veiðitæki: Fluga er eina leyfilega agnið og fer 9-9,6 f einhenda einstaklega vel í þessari á, fyrir línu 7-9.
    Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Ekki á lager
    Fremri Laxá - Holl 6-8. ágúst. 3 stangir í 2 daga. Stangardagurinn á kr. 45.900   Fremri Laxá er bergvatnsá sem rennur í Laxárvatn en á uppruna sinn í Svínavatni. Áin er fremur nett veiðiá, kjörin fyrir fluguna og ekki síður þurrfluguna. Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins en á hverju sumri veiðast nokkrir laxar í Fremri Laxá.  Sá fjöldi urriða sem gengur í ána yfir sumarmánuðina er gríðarlegur og oft er veiðin það mikil að veiðimenn tapa fljótt tölunni á fjölda fiska. Fremri laxá er gríðarlega vinsæl veiðiá og þeir sem ná í holl í ánni, halda yfirleitt vel í þau. Hér er hægt að lesa nánar um Fremri Laxá. Veitt er með 3 stöngum að hámarki á hverjum degi í Fremri Laxá og eru þær stangir seldar saman í einum pakka. Verðið hér á síðunni er fyrir 3 stangir, sjá skýringar með dagsetningum. Fluguveiði. Gamla veiðihúsið/kofinn sem er við ána fylgir með leyfunum en einnig er hægt að leigja mjög gott, nýlega uppgert hús sem stendur steinsnar frá ánni.
    Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details
  • Setja í körfu Details

Title

Go to Top