Langholt – Hvítá

Veiðisvæðið: Svæðið er um 2 km að lengd. Fyrir kunnuga þá hefur sú breyting orðið að Langholt og Hallandi selja ekki leyfi saman. Svæðið nær því frá Sandvík að neðanverðu.

Stangafjöldi: Veitt er á 3 stangir.

Veiðitímabil: 20. júní – 20. september

Veiðitími: Frá 7:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00. Frá 20. ágúst er veiðitími seinna vaktar frá 15:00 – 21:00.

Leyfilegt agn: Fluga, Maðkur, spúnn.

Góðar flugur: Snælda, Pool fly, Frances.

Veiðihús: Tvö svefnherbergi, eldhús, stofa og salerni.

Verð veiðileyfa: Hver stöng kostar kr. 15.000 á dag fram til um 20. ágúst en eftir það kostar hún kr. 10.000.

Langholt er fornfrægt stangveiðisvæði í Hvítá. Það er á vinstri bakka árinnar, milli Stóru Ármóta og Oddgeirshóla. Í gegnum tíðina hafa margir stórlaxar veiðst á svæðinu og margar stórlaxasögurnar orðið til. Síðustu ár hefur sjóbirtingi í aflanum fjölgað mikið.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook